13.03.14
Niðurstöður viðbótarútgáfu RIKB 16 1013

Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 11. mars sl. stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér ekki kaupréttinn í RIKB 20 0205 en nýttu sér kaupréttin í RIKB 16 1013 fyrir 220 m. kr. Selt magn í flokki RIKB 20 0205 nemur því 3.165 m.kr. að nafnvirði og í RIKB 16 1013 nemur 2.820 m.kr. Heildarstærð RIKB 20 0205 eftir útboð er nú 12.373.000.000 kr. að nafnvirði og heildarstærð RIKB 16 1013 er nú 62.023.000.000 kr. að nafnvirði Uppgjör er 14. mars 2014.

Aðrar fréttir

08.04.24
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 26 1015 - RIKB 35 0917
Flokkur RIKB 26 1015 RIKB 35 0917
ISIN IS0000034874 IS0000035574
Gjalddagi 15.10.2026 17.09.2035
Útboðsdagur 10.04.2024 10.04.2024
Uppgjörsdagur 15.04.2024 15.04.2024
10% viðbót 12.04.2024 12.04.2024

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.