Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 25. janúar stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 25 0612 fyrir 280 m.kr. Heildarstærð eftir útboðið í RIKB 25 0612 er nú 91.647.963.000 kr. að nafnvirði. Uppgjör er 30. janúar 2019.