Flokkur |
RIKS 26 0216 |
RIKS 33 0321 |
ISIN |
IS0000030732 |
IS0000021251 |
Gjalddagi |
16.02.2026 |
21.03.2033 |
Útboðsdagur |
05.03.2021 |
05.03.2021 |
Uppgjörsdagur |
10.03.2021 |
10.03.2021 |
|
|
|
Uppkaupsflokkur |
RIKS 21 0414 |
|
Uppkaupsverð (clean) |
100,4500 |
|
Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.
Andvirði uppkaupsbréfanna ásamt áföllnum vöxtum og verðbótum kemur sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum.
Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKS 21 0414
Ath. að ekki er tekið við greiðslu í reiðufé. Eingöngu má greiða fyrir flokkinn með uppkaupsflokkinum á uppkaupsverði.
Til nánari upplýsinga er að öðru leyti vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.
Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.
|