Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 6. september stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér ekki kaupréttinn í RIKB 28 1115 en nýttu sér kaupréttinn í RIKS 26 0216 fyrir 110 m.kr. Heildarstærð eftir útboðið í RIKB 28 1115 er nú 65.401.601.519 kr. og RIKS 26 0216 er nú 20.282.700.000 kr. að nafnvirði. Uppgjör er 11. september 2019.