24.03.20
Aukin fyrirgreiðsla verðbréfalána

Fyrirgreiðsla Lánamála ríkisins til aðalmiðlara ríkisverðbréfa.

Með vísan til samnings í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavaktar á eftirmarkaði dags. 14. mars 2019 hefur verið ákveðið að auka fyrirgreiðslu í RIKB 21 0805 til hvers aðalmiðlara úr 1 ma.kr. í 2 ma.kr. að nafnverði. Breytingin tekur gildi miðvikudaginn 25. mars.

Aðrar fréttir

05.11.25
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215 - RIKS 50 0915
Flokkur RIKB 38 0215 RIKS 50 0915
ISIN IS0000037265 IS0000037794
Gjalddagi 15.02.2038 15.09.2050
Útboðsdagur 07.11.2025 07.11.2025
Uppgjörsdagur 12.11.2025 12.11.2025
10% viðbót 11.11.2025 11.11.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.