30.06.20
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Þriðji ársfjórðungur 2020

  • Á þriðja ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf í markflokkum fyrir 40-60kr. að söluvirði[1].
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa ásamt RIKS 33 0321[2] og munu markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hve mikið verður selt í hverjum flokki.
  • Útgáfa á nýjum óverðtryggðum flokki með gjalddaga árið 2023, sem áætlað var að gefa út á næsta ári, verður flýtt og verður stefnt á viðskiptavakt með flokkinn.

[1] Með söluvirði er átt við hreint verð (clean price) með áföllnum verðbótum á höfuðstól þ.e. verð með verðbótum án áfallinna vaxta.

[2] Ath. að þessi flokkur heyrir ekki undir markflokkakerfið og því ekki um að ræða skipulega viðskiptavakt með flokkinn

3.ársfj.áætlun 2020.pdf

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 27 0120 - RIKV 27 0721
Flokkur RIKV 27 0120 RIKV 27 0721
ISIN IS0000039501 IS0000039741
Gjalddagi 20.01.2027 21.07.2027
Útboðsdagur 12.10.2026 12.10.2026
Uppgjörsdagur 14.10.2026 14.10.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.