28.08.18
Niðurstöður viðbótarútgáfu RIKB 22 1026

Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 24. ágúst stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér ekki kaupréttinn. Heildarstærð eftir útboðið í RIKB 22 1026 er nú 85.232.800.000 kr. að nafnvirði.  Uppgjör er 29. ágúst 2018.

Aðrar fréttir

05.11.25
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215 - RIKS 50 0915
Flokkur RIKB 38 0215 RIKS 50 0915
ISIN IS0000037265 IS0000037794
Gjalddagi 15.02.2038 15.09.2050
Útboðsdagur 07.11.2025 07.11.2025
Uppgjörsdagur 12.11.2025 12.11.2025
10% viðbót 11.11.2025 11.11.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.

20.10.25
Ríkisbréf
Viðskiptavakt hefst með RIKS 50 0915

Í framhaldi af útboði sem haldið var föstudaginn 17. október sl. og með vísan til aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði dags. 21. mars 2025, hefur verið ákveðið að hefja viðskiptavakt með RIKS 50 0915 frá og með uppgjörsdegi útboðsins þann 22. október 2025. Aðalmiðlarar verða skuldbundnir til þess að setja fram kaup- og sölutilboð fyrir að lágmarki 50 m.kr. að nafnverði í flokkinn. Frá sama tíma verður fyrirgreiðsla í formi endurhverfra viðskipta til hvers aðalmiðlara 2 ma.kr. að nafnverði.

Starfsfólk Lánamála ríkisins veitir nánari upplýsingar í síma 569 9994. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected].