01.07.20
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 21 0805 - RIKS 26 0216
Flokkur RIKB 21 0805 RIKS 26 0216
ISIN IS0000031482 IS0000030732
Gjalddagi 05.08.2021 16.02.2026
Útboðsdagur 03.07.2020 03.07.2020
Uppgjörsdagur 08.07.2020 08.07.2020
10% viðbót 07.07.2020 07.07.2020

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðsla fyrir ríkisbréfin þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbót sjá 6. gr. í almennum útboðskilmálum ríkisbréfa.

Til nánari upplýsinga er að öðru leyti vísað til heimasíðu Lánamála ríkisins, þ.e. vegna lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa.

Nánari upplýsingar veitir Laufey Ómarsdóttir, Lánamálum ríkisins í síma 569 9631.

Aðrar fréttir

20.10.25
Ríkisbréf
Viðskiptavakt hefst með RIKS 50 0915

Í framhaldi af útboði sem haldið var föstudaginn 17. október sl. og með vísan til aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði dags. 21. mars 2025, hefur verið ákveðið að hefja viðskiptavakt með RIKS 50 0915 frá og með uppgjörsdegi útboðsins þann 22. október 2025. Aðalmiðlarar verða skuldbundnir til þess að setja fram kaup- og sölutilboð fyrir að lágmarki 50 m.kr. að nafnverði í flokkinn. Frá sama tíma verður fyrirgreiðsla í formi endurhverfra viðskipta til hvers aðalmiðlara 2 ma.kr. að nafnverði.

Starfsfólk Lánamála ríkisins veitir nánari upplýsingar í síma 569 9994. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected].

Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKS 50 0915 - Skiptiútboð eða greiðsla með reiðufé
Flokkur RIKS 50 0915
ISIN IS0000037794
Gjalddagi 15.09.2050
Útboðsdagur 17.10.2025
Uppgjörsdagur 22.10.2025
10% viðbót 21.10.2025
   
Uppkaupsflokkur RIKS 26 0216
Uppkaupsverð (clean) 98,4800

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði.

Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum (þ.e. dirty price).

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKS 26 0216.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.