18.03.22
Samningar undirritaðir við aðalmiðlara

Í dag var skrifað undir samninga milli Lánamála ríkisins f.h. ríkissjóðs og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningunum er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun ríkisverðbréfa á eftirmarkaði.

Frá og með 1. apríl 2022 hafa fjögur fjármálafyrirtæki heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þau eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Kvika banki hf. og Landsbankinn hf. 

Fréttatilkynning (pdf)

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKS 37 0115 - RIKS 50 0915
Flokkur RIKS 37 0115 RIKS 50 0915
ISIN IS0000033793 IS0000037794
Gjalddagi 15.01.2037 15.09.2050
Útboðsdagur 23.10.2026 23.10.2026
Uppgjörsdagur 28.10.2026 28.10.2026
10% viðbót 27.10.2026 27.10.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.