21.03.25
UNDIRRITUN AÐALMIÐLARASAMNINGA

Í dag var skrifað undir samninga milli Lánamála ríkisins f.h. ríkissjóðs og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningunum er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé, efla verðmyndun ríkisverðbréfa á eftirmarkaði og stuðla að virku markflokkakerfi.

 

Frá og með 1. apríl 2025 hafa fimm fjármálafyrirtæki heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þau eru: Arion banki hf., Fossar fjárfestingarbanki hf., Íslandsbanki hf., Kvika banki hf. og Landsbankinn hf. 

 

Helstu atriði aðalmiðlarasamningsins eru þessi:

  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að reglubundnum útboðum ríkisverðbréfa.
  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstakri fyrirgreiðslu, t.d. endurhverfum samningum sem Lánamál ríkisins veita fyrir hönd ríkissjóðs.
  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram tilboð í útboðum ríkisverðbréfa fyrir a.m.k. 100 m.kr. að nafnverði.
  • Aðalmiðlari er viðskiptavaki ríkisbréfa á eftirmarkaði og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 60 til 100 m.kr. að nafnvirði í hvern flokk í kauphöll (nánar skilgreint í samningi).
  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að halda verðmun kaup- og sölutilboða innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningnum.
  • Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Aðalmiðlara er heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða ef tilteknum skilyrðum er fullnægt.
  • Samningurinn gildir frá 1. apríl 2025 til 31. mars 2026.

 

Frekari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson forstöðumaður Lánamála ríkisins í síma 569 9600.

 

Aðrar fréttir

01.10.25
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 35 0917 - RIKS 29 0917 - Skiptiútboð eða reiðufé
Flokkur RIKB 35 0917 RIKS 29 0917
ISIN IS0000035574 IS0000037711
Gjalddagi 17.09.2035 17.09.2029
Útboðsdagur 03.10.2025 03.10.2025
Uppgjörsdagur 08.10.2025 08.10.2025
10% viðbót 07.10.2025 07.10.2025
     
Uppkaupsflokkur RIKS 26 0216  
Uppkaupsverð (clean) 98,2700  

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði.

Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum (þ.e. dirty price).

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKS 26 0216.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.

30.09.25
Ársyfirlit
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Fjórði ársfjórðungur 2025

  • Á fjórða ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf fyrir 24 ma.kr. að söluvirði.
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa og mun stærð þeirra og markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hversu mikið verður selt í hverjum flokki.
  • Á fjórðungnum er fyrirhugað að gefa út í verðtryggða flokknum RIKS 50 0915 og er stefnt að viðskiptavakt með flokkinn.
  • Möguleiki er á skiptiútboðum eða uppkaupum á RIKS 26 0216 á fjórðungnum.

4.ársfj.áætlun 2025

30.09.25
Ríkisbréf
Útgáfa á RIKS 34 1016

Í tengslum við skiptiútboð ÍL-sjóðs sem haldið var í dag mun ríkissjóður Íslands gefa út 1.420.000.000 kr. að nafnverði í flokknum RIKS 34 1016 (ISIN: IS0000037737).

Um ríkisskuldabréfin gilda „Almennir skilmálar íslenskra ríkisskuldabréfa“ og „Sértækir skilmálar“ fyrir skuldabréfaflokkinn sem nálgast má á heimasíðu Lánamála ríkisins, www.lanamal.is.