19.05.26
Árangursrík skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs í evrum

Ríkissjóður Íslands gaf í dag út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, jafnvirði um 72 milljarða króna. Skuldabréfin voru gefin út með 34 punkta álagi á skiptavexti (mid-swap rate). Andvirði útgáfunnar verður varið í að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands og endurfjármagna útistandandi evrubréf sem er á gjalddaga í júní. Útgáfan er í samræmi við breyttar áherslur í stefnu í lánamálum sem miða að því að gefa árlega út á alþjóðamörkuðum.

Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn ríflega 6 milljörðum evra eða rúmlega tólffaldri fjárhæð útgáfunnar. Fjárfestahópurinn samanstendur af eignastýringarsjóðum, bönkum, seðlabönkum, tryggingafélögum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Evrópu. Umsjón útgáfunnar var í höndum BNP Paribas, JP Morgan, Nomura og Deutsche Bank.

„Frábærar viðtökur fjárfesta eru til marks um greiðan aðgang ríkissjóðs að alþjóðamörkuðum og viðurkenning á breyttri stefnu í lánamálum sem miðar að því að auka fyrirsjáanleika í reglubundinni útgáfu og ætti að óbreyttu að hafa jákvæð áhrif á fjármögnunarkjör ríkissjóðs. Það er líka ánægjulegt að sjá enn frekari dreifingu í fjárfestahópnum,“ segir Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra. 

Vaxtakjör ríkissjóðs í þessu útboði eru umtalsvert betri en í síðustu útgáfu, en útgáfur ríkissjóðs eru verðlagðar með hliðsjón af skiptavöxtum (Mid-swap rate). Álagið á skiptavexti nú er 34 punktar en voru 42 punktar í síðustu útgáfu í maí 2025. Álagið á ríkissjóð hefur farið lækkandi á síðustu misserum þrátt fyrir óvissu og áskoranir á alþjóðavettvangi en haldist nokkuð stöðugt frá áramótum. Skuldabréfin bera 3,25% fasta vexti og voru gefin út til 5 ára á  ávöxtunarkröfunni 3,352%.

„Þrátt fyrir ýmsar væringar og óvissu á alþjóðamörkuðum, hefur vaxtaálag ríkissjóðs haldist nokkuð stöðugt. Staða efnahags- og ríkisfjármála er góð þrátt fyrir áskoranir. Staða Íslands er með ágætum í samanburði við það sem margar aðrar þjóðir eru að glíma við; góðar hagvaxtarhorfur, lækkandi skuldahlutfall ríkissjóðs og aukin fjölbreytni í útflutningi sem hefur endurspeglast í bættu lánshæfismati," segir Daði Már Kristófersson.

Aðrar fréttir

30.09.26
Ársyfirlit
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Fjórði ársfjórðungur 2026

  • Á fjórða ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf fyrir 28,5 ma.kr. að söluvirði.
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa og mun stærð þeirra og markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hversu mikið verður selt í hverjum flokki.
  • Möguleiki er á skiptiútboðum á RIKB 27 0415 á fjórðungnum.

4.ársfj.áætlun 2026

16.09.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215 - RIKS 50 0915
Flokkur RIKB 38 0215 RIKS 50 0915
ISIN IS0000037265 IS0000037794
Gjalddagi 15.02.2038 15.09.2050
Útboðsdagur 18.09.2026 18.09.2026
Uppgjörsdagur 23.09.2026 23.09.2026
10% viðbót 22.09.2026 22.09.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.