25.10.17
Ríkissjóður kaupir eigin skuldabréf að nafnvirði 31 milljón Bandaríkjadala

Ríkissjóður hefur keypt til baka eigin skuldabréf að nafnvirði 31 milljón Bandaríkjadala í skuldabréfaflokknum “ICELAND 5.875%“ sem eru á gjalddaga 2022,  (Reg S ISIN USX34650AA31 and 144A ISIN US451029AE22; Reg S CUSIP X34650AA3 and 144A CUSIP 451029AE2) af Seðlabanka Íslands á verðinu 113,29. Heildarnafnverð útgáfunnar nam 1.000 milljónum Bandaríkjadala.  Uppkaupin eru liður í lausafjár- og skuldastýringu ríkissjóðs. 

Aðrar fréttir

17.04.24
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 27 0415 - Nýr flokkur
Flokkur RIKB 27 0415
ISIN IS0000036291
Gjalddagi 15.04.2027
Útboðsdagur 19.04.2024
Uppgjörsdagur 24.04.2024
10% viðbót 23.04.2024

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.