06.12.17
Ríkissjóður tilkynnir tilboð um uppkaup á eigin bréfum og áform um nýja útgáfu

Í tengslum við fyrirhugaða skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs í evrum, tilkynnti ríkissjóður í dag að hann býðst til að kaupa eigin bréf útgefin í evrum sem eru á gjalddaga í júlí 2020 (€750,000,000 2.50 per cent. Notes due 15 July 2020 (ISIN: XS1086879167))

Tilboð 

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 26 0715
Flokkur RIKV 26 0715
ISIN IS0000038735
Gjalddagi 15.07.2026
Útboðsdagur 19.01.2026
Uppgjörsdagur 21.01.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.