06.05.26
Ársskýrsla lánamála ríkisins 2025

Seðlabanki Íslands í nafni lánamála ríkisins fer með umsýslu lána fyrir ríkissjóð í samræmi við samning þar um á milli fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Seðlabankans frá 29. janúar 2019.  Á grundvelli samningsins skal Seðlabankinn ár hvert skila ítarlegri skýrslu þar sem farið er yfir helstu þætti er varða lánamál ríkissjóðs og lántökur þeirra aðila er njóta ríkisábyrgðar. Ársskýrsla lánamála gerir þessum atriðum skil og nær yfir framkvæmd lánamála ríkissjóðs fyrir árið 2025 og er nú birt opinberlega í fyrsta skipti.

Ársskýrsla lánamála ríkisins 2025

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 26 1118
Flokkur RIKV 26 1118
ISIN IS0000039212
Gjalddagi 18.11.2026
Útboðsdagur 18.05.2026
Uppgjörsdagur 20.05.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.