30.12.20
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Fyrsti ársfjórðungur 2021

  • Á fyrsta ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf í markflokkum fyrir 40-60kr. að söluvirði[1].
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa og munu markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hve mikið verður selt í hverjum flokki.
  • RIKB 21 0805 fellur úr tvíhliða viðskiptavakt í febrúar.

[1] Með söluvirði er átt við hreint verð (clean price) með áföllnum verðbótum á höfuðstól þ.e. verð með verðbótum án áfallinna vaxta.

1.ársfj.áætlun 2021.pdf

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKS 37 0115 - RIKS 50 0915
Flokkur RIKS 37 0115 RIKS 50 0915
ISIN IS0000033793 IS0000037794
Gjalddagi 15.01.2037 15.09.2050
Útboðsdagur 23.10.2026 23.10.2026
Uppgjörsdagur 28.10.2026 28.10.2026
10% viðbót 27.10.2026 27.10.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.