Ákveðið hefur verið að ríkissjóður kaupi til baka óverðtryggð bréf af Íbúðalánasjóði í flokki RIKH 18 1009 að andvirði 32.500.000.000 kr. að nafnverði. Á móti afhendir ríkissjóður verðtryggð bréf í flokki RIKS 30 0701 fyrir 31.620.000.000 kr. Uppgjör á bréfunum mun eiga sér stað 9. nóvember.
Aðgerðin felur í sér að eiginfjárframlag ríkissjóðs inn í Íbúðalánasjóð breytist úr því að vera óverðtryggt yfir í það að vera verðtryggt. Markmiðið með aðgerðinni er að draga úr verðtryggingaráhættu Íbúðalánasjóðs en megnið af skuldbindingum hans eru verðtryggðar. Aðgerðin mun hafa óveruleg áhrif á skuldastöðu ríkissjóðs.