30.09.20
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Fjórði ársfjórðungur 2020

  • Á fjórða ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf í markflokkum fyrir 50-70 ma.kr. að söluvirði[1].
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa ásamt RIKS 33 0321 og munu markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hve mikið verður selt í hverjum flokki.

RIKS 21 0414 fellur úr viðskiptavakt í október en stefnt verður á viðskiptavakt með RIKS 33 0321 í staðinn.

[1] Með söluvirði er átt við hreint verð (clean price) með áföllnum verðbótum á höfuðstól þ.e. verð með verðbótum án áfallinna vaxta.

4.ársfj.áætlun 2020

Aðrar fréttir

15.04.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKS 29 0917 - RIKS 37 0115 - Skiptiútboð eða reiðufé
Flokkur RIKS 29 0917 RIKS 37 0115
ISIN IS0000037711 IS0000033793
Gjalddagi 17.09.2029 15.01.2037
Útboðsdagur 17.04.2026 17.04.2026
Uppgjörsdagur 22.04.2026 22.04.2026
10% viðbót 21.04.2026 21.04.2026
     
Uppkaupsflokkur RIKB 26 1015  
Uppkaupsverð (clean) 99,4300  

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði.

Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price).

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 26 1015.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.