07.10.20
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 23 0515 - RIKS 33 0321 (viðskiptavakt hefst)
Flokkur RIKB 23 0515 RIKS 33 0321
ISIN IS0000032191 IS0000021251
Gjalddagi 15.05.2023 21.03.2033
Útboðsdagur 09.10.2020 09.10.2020
Uppgjörsdagur 14.10.2020 14.10.2020
10% viðbót 13.10.2020 13.10.2020

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Viðskiptavakt hefst með RIKS 33 0321

Með vísan til samnings í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði dags. 13. mars 2020 hefur verið ákveðið að hefja viðskiptavakt með RIKS 33 0321 frá og með uppgjörsdegi útboðsins þann 14.10.2020. Aðalmiðlarar verða skuldbundnir til þess að setja fram kaup- og sölutilboð fyrir að lágmarki 70 m.kr. að nafnverði í flokkinn. Frá sama tíma verður fyrirgreiðsla í formi verðbréfalána til hvers aðalmiðlara 2 ma.kr. að nafnverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKS 37 0115 - RIKS 50 0915
Flokkur RIKS 37 0115 RIKS 50 0915
ISIN IS0000033793 IS0000037794
Gjalddagi 15.01.2037 15.09.2050
Útboðsdagur 23.10.2026 23.10.2026
Uppgjörsdagur 28.10.2026 28.10.2026
10% viðbót 27.10.2026 27.10.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.