Ríkissjóður Íslands mun gefa út níu nýja ríkisskuldabréfaflokka í tengslum við uppgjör ÍL-sjóðs (áður Íbúðalánasjóðs). Eftirfarandi nafnverðsfjárhæðir verða gefnar út:
Flokkur: ISIN: Nafnverð:
RIKS 29 0917 IS0000037711 67.000.000.000 kr.
RIKS 34 1016 IS0000037737 60.353.539.382 kr.
RIKS 36 0815 IS0000037729 59.000.000.000 kr.
RIKS 39 1115 IS0000037745 49.000.000.000 kr.
RIKS 41 0815 IS0000037760 50.000.000.000 kr.
RIKS 44 1017 IS0000037778 50.313.049.596 kr.
RIKS 47 1115 IS0000037786 48.000.000.000 kr.
RIKS 50 0915 IS0000037794 47.000.000.000 kr.
RIKB 32 1015 IS0000037752 56.000.000.000 kr.
Um ríkisskuldabréfin munu gilda „Almennir skilmálar íslenskra ríkisskuldabréfa“ og „Sértækir skilmálar“ fyrir skuldabréfaflokkana sem nálgast má á heimasíðu Lánamála ríkisins, www.lanamal.is. Útgáfa í framangreindum skuldabréfaflokkum sem tengist slitum ÍL-sjóðs má fara fram með öðrum hætti en lýst er í 3. gr. í almennum skilmálum íslenskra ríkisskuldabréfa, dags. 5. júní 2025.