12.01.21
Niðurstöður viðbótarútgáfu - RIKB 28 1115 - RIKS 26 0216

Í tengslum við útboð sem haldið var 8. janúar stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða.

Flokkur RIKB 28 1115 RIKS 26 0216
ISIN IS0000028249 IS0000030732
Viðbótarútgáfa (nafnvirði) 70.000.000 275.000.000
Uppgjörsdagur 13.01.2021 13.01.2021
Samtals staða flokks (nafnvirði) 83.139.801.519 30.961.700.000

Aðrar fréttir

05.08.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 29 0416 - RIKB 42 0217 - Skiptiútboð eða reiðufé
Flokkur RIKB 29 0416 RIKB 42 0217
ISIN IS0000039121 IS0000033884
Gjalddagi 16.04.2029 17.02.2042
Útboðsdagur 07.08.2026 07.08.2026
Uppgjörsdagur 12.08.2026 12.08.2026
10% viðbót 11.08.2026 11.08.2026
     
Uppkaupsflokkur RIKB 26 1015  
Uppkaupsverð (clean) 99,7100  

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði.

Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum (þ.e. dirty price).

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 26 1015.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.