28.01.21
Ríkissjóður gefur út skuldabréf í evrum á 0% vöxtum

Ríkissjóður Íslands gaf í dag út skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 117 milljarða króna. Skuldabréfin bera 0% fasta vexti og voru gefin út til 7 ára á  ávöxtunarkröfunni 0,117%.

Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn tæplega 3,5 milljörðum evra eða rúmlega fjórfaldri fjárhæð útgáfunnar. Fjárfestahópurinn samanstendur af bönkum, tryggingafélögum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Norður-Evrópu. Umsjón útgáfunnar var í höndum Citibank,  Barclays og Deutsche Bank.

„Viðbrögð fjárfesta eru til marks um greiðan aðgang ríkissjóðs að alþjóðamörkuðum og endurspegla traust á styrk okkar og getu til þess að mæta efnahagslegum afleiðingum heimsfaraldursins. Með þessari lántöku treystir ríkissjóður en frekar stöðu sína til lengri tíma, en lausafjárstaða ríkissjóðs er mjög góð um þessar mundir,“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra. 

Í útboðsferlinu bötnuðu kjör ríkissjóðs um 12 punkta frá fyrstu verðleiðsögn. Fjárfestahópurinn taldi vel yfir 150 aðila.  

„Útgáfan nú er í samræmi við stefnu í lánamálum, en aukinni fjárþörf ríkissjóðs á næstu árum verður að hluta til mætt með erlendri lántöku eða með því að hagnýta gjaldeyriseign ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands. Markaðsaðstæður eru sérlega hagstæðar um þessar mundir eins og kjör ríkissjóðs nú bera með sér, " segir Bjarni Benediktsson.

Aðrar fréttir

05.11.25
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215 - RIKS 50 0915
Flokkur RIKB 38 0215 RIKS 50 0915
ISIN IS0000037265 IS0000037794
Gjalddagi 15.02.2038 15.09.2050
Útboðsdagur 07.11.2025 07.11.2025
Uppgjörsdagur 12.11.2025 12.11.2025
10% viðbót 11.11.2025 11.11.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.