24.11.11
Útboð ríkisbréfa í desember felld niður

Lánamál ríkisins hafa náð markmiðum í útgáfumálum ríkisbréfa á yfirstandandi ári og hafa  því ákveðið að fella niður síðustu tvö útboð sem fyrirhugað var að halda á árinu. Næsta útboð ríkisbréfa verður því ekki haldið fyrr en á næsta ári skv. útboðsdagatali sem verður kynnt síðar.

Fyrirhugað útboð ríkisvíxla verður haldið með óbreyttu sniði þann 13. desember.

Aðrar fréttir

06.08.25
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215
Flokkur RIKB 38 0215
ISIN IS0000037265
Gjalddagi 15.02.2038
Útboðsdagur 08.08.2025
Uppgjörsdagur 13.08.2025
10% viðbót 12.08.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.