20.12.19 Niðurstaða í útboði ríkisvíxla - RIKV 20 0715 Flokkur RIKV 20 0715 Greiðslu-og uppgjörsdagur 27.12.2019 Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.) 500 Samþykkt (verð / flatir vextir) 98,272 / 3,149 Fjöldi innsendra tilboða 5 Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.) 800 Fjöldi samþykktra tilboða 2 Fjöldi samþykktra tilboða úthlutað að fullu 2 Lægsta úthlutaða verð / Hæstu úthlutuðu flötu vextir 98,272 / 3,149 Hæsta úthlutaða verð / Lægstu úthlutuðu flötu vextir 98,277 / 3,140 Lægsta verð / Hæstu flötu vextir úthlutaðir að fullu 98,272 / 3,149 Vegið meðaltal samþykktra tilboða (verð / flatir vextir) 98,276 / 3,142 Besta tilboð (verð / flatir vextir) 98,277 / 3,140 Versta tilboð (verð / flatir vextir) 98,000 / 3,655 Vegið meðaltal innsendra tilboða (verð / flatir vextir) 98,190 / 3,302 Hlutfall samþykktra tilboða sem tekin eru að hluta (u.þ.b.) 100,00 % Boðhlutfall 1,60 Til baka
07.01.26 Ríkisbréf Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215 - RIKS 29 0917 Flokkur RIKB 38 0215 RIKS 29 0917 ISIN IS0000037265 IS0000037711 Gjalddagi 15.02.2038 17.09.2029 Útboðsdagur 09.01.2026 09.01.2026 Uppgjörsdagur 14.01.2026 14.01.2026 10% viðbót 13.01.2026 13.01.2026 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.
29.12.25 Ársyfirlit Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs Fyrsti ársfjórðungur 2026 Á fyrsta ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf fyrir 40-60 ma.kr. að söluvirði. Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa og mun stærð þeirra og markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hversu mikið verður selt í hverjum flokki. Möguleiki er á skiptiútboðum á RIKS 26 0216 og RIKB 26 1015 á fjórðungnum. 1.ársfj.áætlun 2026
29.12.25 Ársyfirlit Ársáætlun í lánamálum ríkissjóðs 2026 Áætlað er að útgáfa ríkisbréfa nemi 200 ma.kr. að söluvirði árið 2026. Fyrirhugað er að gefa út nýjan óverðtryggðan ríkisbréfaflokk með gjalddaga 2029. Stærð flokka og markaðsaðstæður munu ráða því hversu mikið verður selt í einstökum markflokkum ríkisbréfa. Til greina kemur að mæta lánsfjárþörf ríkissjóðs á árinu að hluta til með ríkisvíxlaútgáfu, hagnýtingu erlendra innstæðna á viðskiptareikningi ríkissjóðs hjá Seðlabanka Íslands og sölu hluta lánasafns Húsnæðissjóðs. Ársáætlun 2026.pdf
11.12.25 Ríkisvíxlar Útboð ríkisvíxla þann 15. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisvíxla sem fyrirhugað var að halda þann 15. desember 2025.
10.12.25 Ríkisbréf Útboð ríkisbréfa þann 12. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda þann 12. desember 2025 þar sem útgáfumarkmiði ársins hefur þegar verið náð.