24.05.22
Niðurstöður viðbótarútgáfu - RIKB 23 0515 - RIKB 42 0217

Í tengslum við útboð sem haldið var 20. maí stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða.

Flokkur RIKB 23 0515 RIKB 42 0217
ISIN IS0000032191 IS0000033884
Viðbótarútgáfa (nafnvirði) 1.028.800.000 120.000.000
Uppgjörsdagur 25.05.2022 25.05.2022
Samtals staða flokks (nafnvirði) 93.747.800.000 38.703.000.000

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 26 0318
Flokkur RIKV 26 0318
ISIN IS0000038016
Gjalddagi 18.03.2026
Útboðsdagur 15.09.2025
Uppgjörsdagur 17.09.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.

Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 27 0415 - RIKB 38 0215 - Skiptiútboð eða reiðufé
Flokkur RIKB 27 0415 RIKB 38 0215
ISIN IS0000036291 IS0000037265
Gjalddagi 15.04.2027 15.02.2038
Útboðsdagur 05.09.2025 05.09.2025
Uppgjörsdagur 10.09.2025 10.09.2025
10% viðbót 09.09.2025 09.09.2025
     
Uppkaupsflokkur RIKS 26 0216  
Uppkaupsverð (clean) 97,7400  

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði.

Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum (þ.e. dirty price).

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKS 26 0216.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.