24.01.23
Niðurstöður viðbótarútgáfu - RIKB 26 1015

Í tengslum við útboð sem haldið var 20. janúar stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða.

Flokkur RIKB 26 1015
ISIN IS0000034874
Viðbótarútgáfa (nafnvirði) 480.000.000
Uppgjörsdagur 25.01.2023
Samtals staða flokks (nafnvirði) 11.206.000.000

Aðrar fréttir

07.01.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215 - RIKS 29 0917
Flokkur RIKB 38 0215 RIKS 29 0917
ISIN IS0000037265 IS0000037711
Gjalddagi 15.02.2038 17.09.2029
Útboðsdagur 09.01.2026 09.01.2026
Uppgjörsdagur 14.01.2026 14.01.2026
10% viðbót 13.01.2026 13.01.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.

29.12.25
Ársyfirlit
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Fyrsti ársfjórðungur 2026

  • Á fyrsta ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf fyrir 40-60 ma.kr. að söluvirði.
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa og mun stærð þeirra og markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hversu mikið verður selt í hverjum flokki.
  • Möguleiki er á skiptiútboðum á RIKS 26 0216 og RIKB 26 1015 á fjórðungnum.

1.ársfj.áætlun 2026