13.09.22
Niðurstöður viðbótarútgáfu - RIKB 25 0612 - RIKS 37 0115

Í tengslum við útboð sem haldið var 9. september stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða.

Flokkur RIKB 25 0612 RIKS 37 0115
ISIN IS0000019321 IS0000033793
Viðbótarútgáfa (nafnvirði) 0 0
Samtals staða flokks (nafnvirði) 106.345.963.000 25.990.000.000

Aðrar fréttir

Aðalmiðlarasamningar

Fjármálaráðherra felur Lánamálum ríkisins hjá Seðlabanka Íslands að gera aðalmiðlarasamninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði.

Innlendir aðilar sem hafa starfsleyfi skv. 1. mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, hafa nauðsynlegan búnað til þess að taka þátt í útboðum ríkisverðbréfa og geta sýnt fram á öruggt uppgjör viðskipta hjá Seðlabanka Íslands, geta óskað eftir því að gerast aðilar að samningunum.

Aðalmiðlarar hafa einir heimild til þess að leggja fram tilboð í útboðum þar sem ríkisverðbréf eru boðin til kaups eða sölu. Einnig fá þeir aðgang að sérstakri fyrirgreiðslu t.d. í formi endurhverfra viðskipta með ríkisbréf, í samræmi við reglur og skilmála.

Aðalmiðlarar annast viðskiptavakt á markflokkum ríkisbréfa og er skylt að setja fram tiltekna lágmarksfjárhæð kaup- og sölutilboða í ríkisbréf, með hliðsjón af hámarksmun sem tilgreindur er í samningunum.

Frekari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi sýnishorni af aðalmiðlarasamningi. Þeir aðilar sem hyggjast gerast aðalmiðlarar með ríkisverðbréf eru beðnir um að senda rafrænt undirritaða samninga til Lánamála ríkisins fyrir klukkan 16:00 föstudaginn 20. mars 2026.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Lánamála ríkisins, netfang: [email protected]

Samningur sýnishorn (pdf)

Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215
Flokkur RIKB 38 0215
ISIN IS0000037265
Gjalddagi 15.02.2038
Útboðsdagur 20.03.2026
Uppgjörsdagur 25.03.2026
10% viðbót 24.03.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 26 0618 - RIKV 26 0916
Flokkur RIKV 26 0618 RIKV 26 0916
ISIN IS0000038966 IS0000038974
Gjalddagi 18.06.2026 16.09.2026
Útboðsdagur 16.03.2026 16.03.2026
Uppgjörsdagur 18.03.2026 18.03.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.