10.04.26 Stærð RIKB 26 1015 Stærð flokksins RIKB 26 1015 eftir skiptiútboð 10. apríl 2026 er 82.320.064.105 (nafnvirði). Til baka
09.04.26 Ríkisvíxlar Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 26 0715 - RIKV 26 0916 Flokkur RIKV 26 0715 RIKV 26 0916 ISIN IS0000038735 IS0000038974 Gjalddagi 15.07.2026 16.09.2026 Útboðsdagur 13.04.2026 13.04.2026 Uppgjörsdagur 15.04.2026 15.04.2026 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.
08.04.26 Ríkisbréf Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 27 0415 - RIKB 38 0215 - Skiptiútboð eða reiðufé Flokkur RIKB 27 0415 RIKB 38 0215 ISIN IS0000036291 IS0000037265 Gjalddagi 15.04.2027 15.02.2038 Útboðsdagur 10.04.2026 10.04.2026 Uppgjörsdagur 15.04.2026 15.04.2026 10% viðbót 14.04.2026 14.04.2026 Uppkaupsflokkur RIKB 26 1015 Uppkaupsverð (clean) 99,4600 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi. Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price). Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 26 1015. Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.
31.03.26 Ársyfirlit Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs Annar ársfjórðungur 2026 Á öðrum ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf fyrir 40-60 ma.kr. að söluvirði. Nýr óverðtryggður flokkur ríkisbréfa með gjalddaga árið 2029 verður gefinn út á ársfjórðungnum og verður stefnt á viðskiptavakt með flokkinn. Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa og mun stærð þeirra og markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hversu mikið verður selt í hverjum flokki. Möguleiki er á skiptiútboðum á RIKB 26 1015 á fjórðungnum. 2.ársfj.áætlun 2026