30.12.21
Stefna í lánamálum ríkisins 2022-2026

Stefna þessi um markmið og viðmið fyrir lánastýringu ríkisins 2022 – 2026 er sett fram á grundvelli fjármálaáætlunar, í samræmi við 38. gr. laga nr.123/2015 um opinber fjármál. Stefnan skal sett fram árlega. Stefna í lánamálum er sett fram til 5 ára og byggir hún á fyrri stefnu sem gefin var út í desember 2020.

Stefna í lánamálum ríkisins 2022-2026 (pdf)

Aðrar fréttir

21.01.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 28 1115 - RIKS 37 0115
Flokkur RIKB 28 1115 RIKS 37 0115
ISIN IS0000028249 IS0000033793
Gjalddagi 15.11.2028 15.01.2037
Útboðsdagur 23.01.2026 23.01.2026
Uppgjörsdagur 28.01.2026 28.01.2026
10% viðbót 27.01.2026 27.01.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.