01.12.17
Stefna í lánamálum ríkisins 2018-2022

Stefna þessi um markmið og viðmið fyrir lánastýringu ríkisins 2018 – 2022 er sett fram á grundvelli fjármálaáætlunar, í samræmi við 38. gr. laga nr.123/2015 um opinber fjármál. Stefnan skal sett fram árlega. Stefna í lánamálum er sett fram til 5 ára og byggir hún á fyrri stefnu sem gefin var út haustið 2016. Stefna í lánamálum ríkisins árin 2018-2022 endurspeglar áform stjórnvalda um framkvæmd lánsfjármögnunar á tímabilinu. Leitast er við að marka skýra stefnu í lánamálum og setja fram mælanleg markmið.

Stefna í lánamálum ríkisins 2018-2022 (pdf)

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 26 0318
Flokkur RIKV 26 0318
ISIN IS0000038016
Gjalddagi 18.03.2026
Útboðsdagur 15.09.2025
Uppgjörsdagur 17.09.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.