01.12.21 Útboð ríkisbréfa þann 3. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda þann 3. desember 2021 þar sem útgáfumarkmiði ársins hefur þegar verið náð. Til baka
08.10.26 Ríkisvíxlar Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 27 0120 - RIKV 27 0721 Flokkur RIKV 27 0120 RIKV 27 0721 ISIN IS0000039501 IS0000039741 Gjalddagi 20.01.2027 21.07.2027 Útboðsdagur 12.10.2026 12.10.2026 Uppgjörsdagur 14.10.2026 14.10.2026 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.