07.02.24 Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 26 1015 - RIKB 35 0917 - Skiptiútboð eða reiðufé Flokkur RIKB 26 1015 RIKB 35 0917 ISIN IS0000034874 IS0000035574 Gjalddagi 15.10.2026 17.09.2035 Útboðsdagur 09.02.2024 09.02.2024 Uppgjörsdagur 14.02.2024 14.02.2024 10% viðbót 13.02.2024 13.02.2024 Uppkaupsflokkur RIKB 24 0415 Uppkaupsverð (clean) 98,8100 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi. Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price). Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 24 0415. Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630. Til baka
11.12.25 Ríkisvíxlar Útboð ríkisvíxla þann 15. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisvíxla sem fyrirhugað var að halda þann 15. desember 2025.
10.12.25 Ríkisbréf Útboð ríkisbréfa þann 12. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda þann 12. desember 2025 þar sem útgáfumarkmiði ársins hefur þegar verið náð.
09.12.25 Markaðsupplýsingar Markaðsupplýsingar í desember 2025 Uppfært 11. desember 2025 Markaðsupplýsingar (pdf)