10.08.26
Stærð RIKB 26 1015

Stærð flokksins RIKB 26 1015 eftir skiptiútboð 7. ágúst 2026 er 56.117.588.711 að nafnvirði.

Aðrar fréttir

05.08.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 29 0416 - RIKB 42 0217 - Skiptiútboð eða reiðufé
Flokkur RIKB 29 0416 RIKB 42 0217
ISIN IS0000039121 IS0000033884
Gjalddagi 16.04.2029 17.02.2042
Útboðsdagur 07.08.2026 07.08.2026
Uppgjörsdagur 12.08.2026 12.08.2026
10% viðbót 11.08.2026 11.08.2026
     
Uppkaupsflokkur RIKB 26 1015  
Uppkaupsverð (clean) 99,7100  

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði.

Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum (þ.e. dirty price).

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 26 1015.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.