07.10.20 Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 23 0515 - RIKS 33 0321 (viðskiptavakt hefst) Flokkur RIKB 23 0515 RIKS 33 0321 ISIN IS0000032191 IS0000021251 Gjalddagi 15.05.2023 21.03.2033 Útboðsdagur 09.10.2020 09.10.2020 Uppgjörsdagur 14.10.2020 14.10.2020 10% viðbót 13.10.2020 13.10.2020 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðskilmálum ríkisbréfa. Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins. Viðskiptavakt hefst með RIKS 33 0321 Með vísan til samnings í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði dags. 13. mars 2020 hefur verið ákveðið að hefja viðskiptavakt með RIKS 33 0321 frá og með uppgjörsdegi útboðsins þann 14.10.2020. Aðalmiðlarar verða skuldbundnir til þess að setja fram kaup- og sölutilboð fyrir að lágmarki 70 m.kr. að nafnverði í flokkinn. Frá sama tíma verður fyrirgreiðsla í formi verðbréfalána til hvers aðalmiðlara 2 ma.kr. að nafnverði. Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679. Til baka
11.12.25 Ríkisvíxlar Útboð ríkisvíxla þann 15. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisvíxla sem fyrirhugað var að halda þann 15. desember 2025.
10.12.25 Ríkisbréf Útboð ríkisbréfa þann 12. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda þann 12. desember 2025 þar sem útgáfumarkmiði ársins hefur þegar verið náð.
09.12.25 Markaðsupplýsingar Markaðsupplýsingar í desember 2025 Uppfært 11. desember 2025 Markaðsupplýsingar (pdf)