18.01.23 Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 26 1015 - Nýr flokkur - Skiptiútboð eða reiðufé Flokkur RIKB 26 1015 ISIN IS0000034874 Gjalddagi 15.10.2026 Útboðsdagur 20.01.2023 Uppgjörsdagur 25.01.2023 10% viðbót 24.01.2023 Uppkaupsflokkur RIKB 23 0515 Uppkaupsverð (clean) 98,5400 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi. Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price). Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 23 0515. Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635. Til baka
11.12.25 Ríkisvíxlar Útboð ríkisvíxla þann 15. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisvíxla sem fyrirhugað var að halda þann 15. desember 2025.
10.12.25 Ríkisbréf Útboð ríkisbréfa þann 12. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda þann 12. desember 2025 þar sem útgáfumarkmiði ársins hefur þegar verið náð.
09.12.25 Markaðsupplýsingar Markaðsupplýsingar í desember 2025 Uppfært 11. desember 2025 Markaðsupplýsingar (pdf)