22.03.23 Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 31 0124 Flokkur RIKB 31 0124 ISIN IS0000020386 Gjalddagi 24.01.2031 Útboðsdagur 24.03.2023 Uppgjörsdagur 29.03.2023 10% viðbót 28.03.2023 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635. Til baka
11.12.25 Ríkisvíxlar Útboð ríkisvíxla þann 15. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisvíxla sem fyrirhugað var að halda þann 15. desember 2025.
10.12.25 Ríkisbréf Útboð ríkisbréfa þann 12. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda þann 12. desember 2025 þar sem útgáfumarkmiði ársins hefur þegar verið náð.
09.12.25 Markaðsupplýsingar Markaðsupplýsingar í desember 2025 Uppfært 11. desember 2025 Markaðsupplýsingar (pdf)