10.06.25
Nýir flokkar ríkisskuldabréfa

Ríkissjóður Íslands mun gefa út níu nýja ríkisskuldabréfaflokka í tengslum við uppgjör ÍL-sjóðs (áður Íbúðalánasjóðs). Eftirfarandi nafnverðsfjárhæðir verða gefnar út:

Flokkur:                      ISIN:                           Nafnverð:

RIKS 29 0917               IS0000037711             67.000.000.000 kr.

RIKS 34 1016               IS0000037737             60.353.539.382 kr.

RIKS 36 0815               IS0000037729             59.000.000.000 kr.

RIKS 39 1115               IS0000037745             49.000.000.000 kr.

RIKS 41 0815               IS0000037760             50.000.000.000 kr.

RIKS 44 1017               IS0000037778             50.313.049.596 kr.

RIKS 47 1115               IS0000037786             48.000.000.000 kr.

RIKS 50 0915               IS0000037794             47.000.000.000 kr.

RIKB 32 1015               IS0000037752             56.000.000.000 kr.

Um ríkisskuldabréfin munu gilda „Almennir skilmálar íslenskra ríkisskuldabréfa“ og „Sértækir skilmálar“ fyrir skuldabréfaflokkana sem nálgast má á heimasíðu Lánamála ríkisins, www.lanamal.is.  Útgáfa í framangreindum skuldabréfaflokkum sem tengist slitum ÍL-sjóðs má fara fram með öðrum hætti en lýst er í 3. gr. í almennum skilmálum íslenskra ríkisskuldabréfa, dags. 5. júní 2025.

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 25 1119
Flokkur RIKV 25 1119
ISIN IS0000037547
Gjalddagi 19.11.2025
Útboðsdagur 14.07.2025
Uppgjörsdagur 16.07.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.

07.07.25
Ríkisbréf
Viðskiptavakt hefst með RIKS 29 0917

Í framhaldi af skiptiútboði sem haldið var föstudaginn 4. júlí sl. og með vísan til aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði dags. 21. mars 2025, hefur verið ákveðið að hefja viðskiptavakt með RIKS 29 0917 frá og með uppgjörsdegi útboðsins þann 9. júlí 2025. Aðalmiðlarar verða skuldbundnir til þess að setja fram kaup- og sölutilboð fyrir að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði í flokkinn. Frá sama tíma verður fyrirgreiðsla í formi endurhverfra viðskipta til hvers aðalmiðlara 2 ma.kr. að nafnverði.

Starfsfólk Lánamála ríkisins veitir nánari upplýsingar í síma 569 9994. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lanamal@lanamal.is.