25.09.20
Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 21 0215 - RIKV 21 0915
Flokkur RIKV 21 0215 RIKV 21 0915
ISIN IS0000032183 IS0000032316
Gjalddagi 15.02.2021 15.09.2021
Útboðsdagur 29.09.2020 29.09.2020
Uppgjörsdagur 01.10.2020 01.10.2020

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðsla fyrir ríkisvíxlana þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.

Aðrar fréttir

07.01.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215 - RIKS 29 0917
Flokkur RIKB 38 0215 RIKS 29 0917
ISIN IS0000037265 IS0000037711
Gjalddagi 15.02.2038 17.09.2029
Útboðsdagur 09.01.2026 09.01.2026
Uppgjörsdagur 14.01.2026 14.01.2026
10% viðbót 13.01.2026 13.01.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.

29.12.25
Ársyfirlit
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Fyrsti ársfjórðungur 2026

  • Á fyrsta ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf fyrir 40-60 ma.kr. að söluvirði.
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa og mun stærð þeirra og markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hversu mikið verður selt í hverjum flokki.
  • Möguleiki er á skiptiútboðum á RIKS 26 0216 og RIKB 26 1015 á fjórðungnum.

1.ársfj.áætlun 2026

29.12.25
Ársyfirlit
Ársáætlun í lánamálum ríkissjóðs 2026
  • Áætlað er að útgáfa ríkisbréfa nemi 200 ma.kr. að söluvirði árið 2026.
  • Fyrirhugað er að gefa út nýjan óverðtryggðan ríkisbréfaflokk með gjalddaga 2029. Stærð flokka og markaðsaðstæður munu ráða því hversu mikið verður selt í einstökum markflokkum ríkisbréfa.
  • Til greina kemur að mæta lánsfjárþörf ríkissjóðs á árinu að hluta til með ríkisvíxlaútgáfu, hagnýtingu erlendra innstæðna á viðskiptareikningi ríkissjóðs hjá Seðlabanka Íslands og sölu hluta lánasafns Húsnæðissjóðs.

Ársáætlun 2026.pdf