12.03.21
Samningar undirritaðir við aðalmiðlara

Í dag var skrifað undir samninga milli Lánamála ríkisins f.h. ríkissjóðs og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningunum er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun ríkisverðbréfa á eftirmarkaði.

Frá og með 1. apríl 2021 hafa fjögur fjármálafyrirtæki heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þau eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Kvika banki hf. og Landsbankinn hf.

Fréttatilkynning (pdf)

Aðrar fréttir

17.04.24
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 27 0415 - Nýr flokkur
Flokkur RIKB 27 0415
ISIN IS0000036291
Gjalddagi 15.04.2027
Útboðsdagur 19.04.2024
Uppgjörsdagur 24.04.2024
10% viðbót 23.04.2024

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.