| Flokkur |
RIKB 29 0416 |
RIKS 29 0917 |
| ISIN |
IS0000039121 |
IS0000037711 |
| Gjalddagi |
16.04.2029 |
17.09.2029 |
| Útboðsdagur |
20.11.2026 |
20.11.2026 |
| Uppgjörsdagur |
25.11.2026 |
25.11.2026 |
| |
|
|
| Uppkaupsflokkur |
RIKB 27 0415 |
|
| Uppkaupsverð (clean) |
99,8800 |
|
Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.
Eingöngu er hægt að greiða fyrir flokkana með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Ekki er tekið við greiðslu í reiðufé.
Verðmæti uppkaupsbréfanna er metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price). Afhenda þarf Seðlabankanum bréfin fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi.
Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 27 0415.
Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.
Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.
|