12.01.12
Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur

Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 30 0701. Útboðin tvö eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011 og einnig skilmála Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011.

Frekari upplýsingar

Útboðsskilmálar_Fjárfestingarleið(pdf)
Útboðsskilmálar_Ríkisbréf(pdf)

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 25 0917 - RIKV 25 1217
Flokkur RIKV 25 0917 RIKV 25 1217
ISIN IS0000037349 IS0000037695
Gjalddagi 17.09.2025 17.12.2025
Útboðsdagur 06.06.2025 06.06.2025
Uppgjörsdagur 11.06.2025 11.06.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Vakin er athygli á því að rafræn skráning ríkisvíxilsins RIKV 25 0917 er hjá Verðbréfamiðstöð Íslands hf. (VBM). Flokkurinn RIKV 25 1217 verður skráður hjá Nasdaq CSD.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.

04.06.25
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 27 0415 - RIKB 35 0917
Flokkur RIKB 27 0415 RIKB 35 0917
ISIN IS0000036291 IS0000035574
Gjalddagi 15.04.2027 17.09.2035
Útboðsdagur 06.06.2025 06.06.2025
Uppgjörsdagur 12.06.2025 12.06.2025
10% viðbót 11.06.2025 11.06.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 13:30 og 14:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.

27.05.25
Erlend lán
Ríkissjóður kaupir eigin skuldabréf að nafnvirði 204 milljónir evra

Ríkissjóður hefur keypt til baka eigin skuldabréf að nafnvirði 203,7 milljónir evra (ISIN: XS2182399274) á verðinu 98,81. Það samsvarar um 29 milljörðum króna. 

Þann 19. maí bauðst ríkissjóður til að kaupa alla útistandandi fjárhæð eigin skuldabréfa sem gefin voru út árið 2020 og eru á gjalddaga 3. júní 2026. Tilboðið stóð til kl. 17.00 þann 23. maí. Heildarnafnverð útgáfunnar nam 500 milljónum evra.

Uppkaupin eru liður í lausafjár- og skuldastýringu ríkissjóðs. Endurkaupin verða greidd með hluta andvirðis evruskuldabréfs sem ríkissjóður gaf út á dögunum.