24.06.25
Niðurstöður viðbótarútgáfu - RIKB 28 1115 - RIKB 38 0215

Í tengslum við útboð sem haldið var 20. júní stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða.

Flokkur RIKB 28 1115 RIKB 38 0215
ISIN IS0000028249 IS0000037265
Viðbótarútgáfa (nafnvirði) 275.000.000 102.000.000
Uppgjörsdagur 25.06.2025 25.06.2025
Samtals staða flokks (nafnvirði) 124.037.301.519 31.113.000.000

Aðrar fréttir

01.07.25
Ríkisbréf
Tilkynning um aukaútboð ríkisbréfa - RIKB 32 1015 - Skiptiútboð

Í framhaldi af uppgjöri á HFF bréfum ÍL-sjóðs hefur verið ákveðið að efna til skiptiútboðs þar sem eigendum verðtryggða ríkisbréfaflokksins RIKS 50 0915 gefst færi á að skipta yfir í óverðtryggða flokkinn RIKB 32 1015. Áhugasömum er bent á að snúa sér til aðalmiðlara til að taka þátt í skiptiútboðinu.

Flokkur RIKB 32 1015
ISIN IS0000037752
Gjalddagi 15.10.2032
Útboðsdagur 03.07.2025
Uppgjörsdagur 08.07.2025
   
Uppkaupsflokkur RIKS 50 0915
Uppkaupsverð (clean) 112,9150, sem til skýringar jafngildir 2,78% ávöxtunarkröfu.

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Eingöngu er hægt að greiða fyrir flokkana með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Ekki er tekið við greiðslu í reiðufé.

Verðmæti uppkaupsbréfanna er metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum (þ.e. dirty price). Afhenda þarf Seðlabankanum bréfin fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi.

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKS 50 0915.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Starfsfólk Lánamála ríkisins veitir nánari upplýsingar í síma 569 9994. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lanamal@lanamal.is.

30.06.25
Ársyfirlit
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Þriðji ársfjórðungur 2025

  • Á þriðja ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf fyrir 30-40 ma.kr. að söluvirði.
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa og mun stærð þeirra og markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hversu mikið verður selt í hverjum flokki.
  • Á fjórðungnum er fyrirhugað að gefa út í verðtryggða flokknum RIKS 29 0917 og er stefnt að viðskiptavakt með flokkinn.
  • Möguleiki er á skiptiútboðum á RIKS 26 0216 á fjórðungnum.

3.ársfj.áætlun 2025

Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 28 1115 - RIKB 38 0215
Flokkur RIKB 28 1115 RIKB 38 0215
ISIN IS0000028249 IS0000037265
Gjalddagi 15.11.2028 15.02.2038
Útboðsdagur 20.06.2025 20.06.2025
Uppgjörsdagur 25.06.2025 25.06.2025
10% viðbót 24.06.2025 24.06.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.