18.05.22 Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 23 0515 - RIKB 42 0217 - Skiptiútboð eða reiðufé Flokkur RIKB 23 0515 RIKB 42 0217 ISIN IS0000032191 IS0000033884 Gjalddagi 15.05.2023 17.02.2042 Útboðsdagur 20.05.2022 20.05.2022 Uppgjörsdagur 25.05.2022 25.05.2022 10% viðbót 24.05.2022 24.05.2022 Uppkaupsflokkur RIKB 22 1026 Uppkaupsverð (clean) 100,9800 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi. Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 daginn fyrir uppgjörsdag. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price). Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 22 1026. Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679. Til baka
11.12.25 Ríkisvíxlar Útboð ríkisvíxla þann 15. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisvíxla sem fyrirhugað var að halda þann 15. desember 2025.
10.12.25 Ríkisbréf Útboð ríkisbréfa þann 12. desember fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að hætta við útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda þann 12. desember 2025 þar sem útgáfumarkmiði ársins hefur þegar verið náð.
09.12.25 Markaðsupplýsingar Markaðsupplýsingar í desember 2025 Uppfært 11. desember 2025 Markaðsupplýsingar (pdf)