31.03.26
Lækkun ríkisbréfaflokka í tengslum við uppgjör ÍL-sjóðs

Í tengslum við slit ÍL-sjóðs eignaðist ríkissjóður eigin bréf sem áður voru í eigu sjóðsins. Ríkisbréfin koma til lækkunar á skráðri stærð flokkanna í kauphöll.

Í meðfylgjandi töflu má sjá nafnverðið sem ríkisjóður eignaðist og stærð flokka eftir lækkun:

Flokkur Nafnverð (kr.) Stærð (nafnverð kr.)
RIKB 32 1015 2.095 67.599.997.905
RIKS 29 0917 1.504 107.114.998.496
RIKS 33 0321 739.923 79.393.179.919
RIKS 34 1016 410 61.773.538.972
RIKS 36 0815 1.498 58.999.998.502
RIKS 39 1115 1.274 48.999.998.726
RIKS 41 0815 2.218 49.999.997.782
RIKS 44 1017 3.510 50.313.046.086
RIKS 47 1115 1.449 47.999.998.551
RIKS 50 0915 1.065 39.395.020.947

Aðrar fréttir

15.04.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKS 29 0917 - RIKS 37 0115 - Skiptiútboð eða reiðufé
Flokkur RIKS 29 0917 RIKS 37 0115
ISIN IS0000037711 IS0000033793
Gjalddagi 17.09.2029 15.01.2037
Útboðsdagur 17.04.2026 17.04.2026
Uppgjörsdagur 22.04.2026 22.04.2026
10% viðbót 21.04.2026 21.04.2026
     
Uppkaupsflokkur RIKB 26 1015  
Uppkaupsverð (clean) 99,4300  

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði.

Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price).

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 26 1015.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.